28.3.2008 | 12:20
Hvað er eginlega málið með þetta fólk??
Þetta er nú meira krimma hverfið þetta blessaða breiðholt, ekki er nú langt síðan sprautumálin voru, og þá það að þurfa ræna manni, rassskella svona lið
En nóg um þetta Krimma hverfi, vil ekki drulla það ofmikið út þar sem kallinn er nú þaðan
Og ekki nóg með það Ég hreinlega gleymi því alltaf að ég sé ólétt! T.d í gær gerði ég stórverk, tók allt út úr svefnherberginu nema rúmmið og fór að mála einn vegginn sem var orðinn ljótur, byrjaði á hvítu og gafst upp og náði mér í blátt og svamp og svampaði vegginn allt í hringi.
Endaði svo á að missa mig og gerði bláa hringi út um allt herbergið hehe, kallinn kom inn úr fjósi og starði á herbergið, og sagðist bara elska mig
Já svo útbjó ég festingu fyrir himnasæng fyrir ofan barnarúmmið og lagaði til í öllu svefnherberginu að verki loknu, og ég náði loksins að sofa til hálf 12 en ekki 8-9
Já ég er farin að sötra kaffi með púðursykri þar sem sykurinn er búinn
Bið að heilsa ykkur
Þrír rændu manni í Breiðholti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.